Anton Sveinn McKee er með árangri sínum síðustu árin orðinn einn besti bringusundsmaður á Norðurlöndunum frá upphafi.
Anton á næstbesta tíma á Norðurlöndunum frá upphafi í tveimur vegalengdum í bringusundi. Þegar Anton stórbætti Íslandsmetið í 200 metra bringusundi í 25 metra laug á HM í Kína í gær þá synti hann á 2:04,38 mínútum. Er það næstbesti tími Norðurlandabúa í greininni í 25 metra laug frá upphafi.
Fyrr í vikunni keppti Anton í 100 metra bringusundi á HM og bætti þá einnig eigið Íslandsmet. Þá synti hann á 57,57 sekúndum og er það einnig næstbesti tími Norðurlandabúa í greininni í 25 metra laug.
Næsta sumar fer fram HM í 50 metra laug og verður áhugavert að sjá hversu langt Anton getur náð á því móti og hversu hratt hann syndir.