Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr SH hafnaði í 30. sæti í 50 metra baksundi á heimsmeistaramótinu í 25 metra laug í Kína í nótt.
Ingibjörg synti á 27,99 sekúndum í undanrásum en tími hennar á Íslandsmótinu í 25 metra laug í nóvember var 27,95 sekúndur. Hennar besti tími í greininni er 27,42 sekúndur en Eygló Ósk Gústafsdóttir á Íslandsmetið í greininni 27,40 sekúndur síðan á HM25 árið 2016.
Ingibjörg er úr leik í greininni en sextán efstu keppendurnir keppa í undanúrslitum.