Sara og Axel best í Hafnarfirði

Sara Rós Jakobsdóttir dansari úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar er íþróttakona Hafnarfjarðar …
Sara Rós Jakobsdóttir dansari úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar er íþróttakona Hafnarfjarðar árið 2018 og Axel Bóasson kylfingur frá Golfklúbbnum Keili íþróttakarl Hafnarfjarðar 2018

Íþróttafólk ársins 2018 í Hafnarfirði var valið í dag á árlegri Íþrótta- og viðurkenningarhátíð. Sara Rós Jakobsdóttir dansari úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar er íþróttakona Hafnarfjarðar 2018 og Axel Bóasson kylfingur frá Golfklúbbnum Keili íþróttakarl Hafnarfjarðar. Afrekslið Hafnarfjarðar 2018 er meistaraflokkur karla og kvenna í frjálsum íþróttum hjá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar og íþrótta- og tómstundanefnd stóðu í dag fyrir afhendingu viðurkenninga til íþróttamanna sem keppa með hafnfirskum liðum, Íslandsmeistara, hópa bikarmeistara, Norðurlandameistara, heimsmeistara og sérstakra afreka, ásamt vali á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar á árinu 2018. Hátt í 500 einstaklingum var veitt viðurkenning á hátíðinni en auk þeirra var úthlutað 20 milljónum króna úr sjóði sem Rio Tinto á Íslandi, ÍBH og Hafnarfjarðarbær standa að og ætlað er að efla íþróttastarf 18 ára og yngri.

Íþróttakona, íþróttakarl og íþróttalið Hafnarfjarðar 2018

Afrekslið Hafnarfjarðar 2018 er meistaraflokkur karla og kvenna í frjálsum íþróttum hjá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar en liðið varð Íslandsmeistari félagsliða í frjálsíþróttum samanlagt karla- og kvennalið innanhúss, Íslandsmeistari félagsliða í frjálsíþróttum kvennaliðið innanhúss, bikarmeistari félagsliða í frjálsíþróttum karlaliðið innanhúss og bikarmeistari félagsliða í frjálsíþróttum kvennaliðið utanhúss. Auk þess átti liðið stóran hóp í öllum landsliðskeppnum í karla- og kvennaflokki á árinu.

Sara Rós Jakobsdóttir dansari úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar er íþróttakona Hafnarfjarðar árið 2018. Sara Rós er margfaldur Íslands- og bikarmeistari í standard, latin og 10 dönsum á árinu. Hún keppir fyrir landslið Dansíþróttasambands Íslands ásamt dansfélaga sínum og tóku þau þátt í fjölda alþjóðlegra móta víðsvegar um heiminn með góðum árangri. Í ár er 6.sætið í úrlistakeppni Evrópumeistaramótsins í 10 dönsum besta afrek þeirra.

Axel Bóasson kylfingur frá Golfklúbbnum Keili er íþróttakarl Hafnarfjarðar árið 2018. Axel er einn af bestu kylfingum landsins og er á þriðja ári sem atvinnumaður. Hann er Íslandsmeistari og stigameistari karla á árinu. Hann sigraði á Evrópumóti atvinnumanna í blönduðum liðum ásamt Birgi Leif, Valdísi og Ólafíu á Gleneagles í Skotlandi. Axel varð einnig í öðru sæti liða í tvímenningi á Evrópukeppni atvinnumanna ásamt Birgi Leif.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert