Besti árangur Snorra í vetur

Snorri Einarsson gerði góða hluti í dag.
Snorri Einarsson gerði góða hluti í dag. Skíðasamband íslands

Tour de Ski hélt áfram í dag þegar keppt var í 15 km göngu með frjálsri aðferð í Toblach, Ítalíu. Var þetta önnur keppnin af alls sjö á mótaröðinni. Snorri Einarsson átti góða göngu og endaði í 46. sæti eftir að hafa verið með rásnúmer 81 og þar af leiðandi nr. 81 út frá heimslista FIS á mótinu.

Fyrir mótið fær Snorri 45.49 FIS-stig sem er nokkur bæting á heimslistanum en þar er hann með 55.05 FIS-stig. Er þetta besti árangur Snorri á heimsbikarmótaröðinni í vetur en áður hafði hann náð best 58. sæti.

Í heildarkeppninni í Tour de Ski er Snorri í 49. sæti eftir fyrstu tvær keppnirnar. Á morgun er hvíldardagur en keppni hefst aftur 1. janúar með sprettgöngu í Val Müstair í Sviss.

30.des 2018 - 15 km, frjáls aðferð
46.sæti - Snorri Einarsson 45.49 FIS-stig

Heildarúrslit má sjá hér.

Tour de Ski 2018/19 - Dagskrá fram undan

Val Müstair, Sviss
1. jan - Sprettur, frjáls aðferð (úrslitin hefjast kl. 11:00 að íslenskum tíma)

Oberstdorf, Þýskaland
2. jan - 10/15 km, hefðbundin aðferð, hópstart (hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma)
3. jan - 10/15 km, frjáls aðferð, eltiganga (hefst kl. 11:45 að íslenskum tíma)

Val di Fiemme, Ítalía
5. jan - 10/15 km, hefðbundin aðferð, hópstart (hefst kl. 14:10 að íslenskum tíma)
6. jan - Final Climb 9 km, frjáls aðferð, eltiganga (hefst kl. 13:45 að íslenskum tíma)

Hægt verður að horfa á beina útsendingu frá mótinu á sjónvarpsstöðvum eins og NRK, SVT og Eurosport. Á heimasíðu FIS verður hægt að finna lifandi tímatöku og svo endanleg úrslit frá öllum hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert