Bætti 15 ára gamalt met

Hlynur Ólason.
Hlynur Ólason. Ljósmynd/FRÍ

ÍR-ingurinn Hlynur Ólason bætti 15 ára gamalt piltamet Kára Steins Karlssonar í 3.000 metra hlaupi á Áramóti Fjölnis sem fram fór í Laugardalshöllinni um áramótin.

Hlynur hljóp vegalengdina á 9:10,0 2 mínútum í flokki 16-17 ára og bætti met Kára Steins sem hann setti í Stokkhólmi árið 2003 um rúmar 9 sekúndur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert