Djokovic í sögubækurnar

Novak Djokovic fagnar í dag.
Novak Djokovic fagnar í dag. AFP

Serbinn Novak Djokovic tryggði sér í dag sæti í átta manna úrslitum Opna ástralska meistaramótsins í tennis og komst um leið í sögubækurnar í tennisheiminum.

Djokovic vann Daniil Medvedev í fjórum settum, 6:4, 6:7, 6:2, 6:3, og leikinn því 3:1, en þetta er í tíunda sinn sem hann kemst í átta manna úrslit á þessu fyrsta risamóti hvers árs.

Þetta þýðir að Djokovic hefur komist í átta manna úrslit að minnsta kosti tíu sinnum á öllum fjórum risamótunum í tennis. Hann er aðeins annar í sögunni sem nær því, en hinn er Roger Federer.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert