Þrír Íslendingar áfram eftir fyrri ferð

Íslensku keppendurnir í svigi kvenna í Åre í Svíþjóð.
Íslensku keppendurnir í svigi kvenna í Åre í Svíþjóð. Ljósmynd/Ski.is

Freydís Halla Einarsdóttir, María Finnbogadóttir og Andrea Björk Birgisdóttir komust allar áfram eftir fyrri ferð í svigi kenna á HM í alpagreinum í Åre í Svíþjóð í dag. Freydís hafnaði í 40. sæti eftir fyrri ferðina, María í 45. sæti og Andrea Björk í 48. sæti.

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir var einnig á meðal keppenda í svigi kvenna en hún náði ekki að klára fyrri ferðina. Keppni í svigi kvenna heldur áfram síðar í dag í Åre þegar konurnar takast á við seinni ferð sína í svigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert