Óvæntustu úrslit í áraraðir

Bianca Andreescu
Bianca Andreescu AFP

Geysilega óvænt úrslit urðu í einliðaleik kvenna á Opna BNP Paribas mótinu í tennis í Kaliforníu þegar hin 18 ára gamla Bianca Andreescu sigraði. 

Andresscu lagði að velli Angelique Kerber 6:4, 3:6 og 6:4 í úrslitaleiknum en Kerber hefur þrívegis sigrað á risamótum og þekkt stærð í íþróttinni. 

Frammistöðunar vegna spá nú margir að ný stjarna sé að verða til í tennisíþróttinni en með sigrinum fer hin kanadíska Andresscu uppí 24. sæti á stigalista WTA mótaraðarinnar. 

Ekki ætti að vera vandamál fyrir Andresscu að einbeita sér að íþróttinni eftir þennan sigur því hún fékk í verðlaunafé liðlega 160 milljónir íslenskra króna. 

Viðbrögð Bianca Andreescu þegar sigurinn var í höfn.
Viðbrögð Bianca Andreescu þegar sigurinn var í höfn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert