Hilmar keppir í Frakklandi

Hilmar Snær Örvarsson
Hilmar Snær Örvarsson mbl.is/Hari

Hilmar Snær Örvarsson keppir á morgun á lokamótinu í svigi í heimsbikarnum hjá fötluðum en mótið fer fram í Morzine’s Le Stade í Frakklandi. 

Hilmar er í 10. sæti á stigalistanum fyrir lokamótið og ætti því að fá fínt rásnúmer. Hilmar sigraði á heimsbikarmóti í svigi í vetur og er eini íslenski skíðamaðurinn sem það hefur afrekað. Í framhaldinu hafnaði hann í 4. sæti í svigi á HM fatlaðra í Slóveníu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert