Hilmar féll í fyrri ferðinni

Hilmar Snær Örvarsson.
Hilmar Snær Örvarsson. Ljósmynd/Lintao Zhang/ifsport

Hilmari Snæ Örvarssyni úr Víkingi hlekktist á fyrri ferðinni á heimsbikarmóti í svigi í Frakklandi í morgun og getur því ekki skíðað í síðari ferðinni. 

Hilmar er því úr leik á mótinu í dag en fær annað tækifæri á morgun þegar lokamót heimsbikarsins fer fram á sama stað. 

Hilmar sigraði á heimsbikarmóti í Zagreb fyrr í vetur og hafnaði í 4. sæti í svigi á HM fatlaðra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert