Þriðji eftir fyrri ferðina

Þórður Georg Hjörleifsson þjálfari, Hilmar Snær Örvarsson og Einar Bjarnason …
Þórður Georg Hjörleifsson þjálfari, Hilmar Snær Örvarsson og Einar Bjarnason aðstoðarþjálfari. mbl.is/Hari

Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi á möguleika á verðlaunum í svigi á lokamóti heimsbikarsins á skíðum sem fram fer í Frakklandi. Hilmar er þriðji að lokinni fyrri ferðinni. 

Hilmar skíðaði niður brekkuna á einu skíði á 51,08 sekúndum en Frakkinn Arthur Bauchet hefur afgerandi forystu á 48,58 sekúndum. 

Hilmar hefur áður náð í verðlaun á heimsbikarmóti en hann sigraði á slíku móti í Zagreb í vetur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert