Dæmdi í undanúrslitum en þjálfar í úrslitum

Karlalið KA í blaki.
Karlalið KA í blaki. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Furðuleg staða kom upp í undanúrslitaleik KA og Þróttar Neskaupstað í Kjörís-bikar karla í blaki í Digranesi í gær þar sem aðaldómari leiksins, Zdravko Demirev, er þjálfari Álftaness sem fyrr um daginn tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.

Í frétt Blakfrétta.is segir að nóg hafi verið af dómurum á svæðinu og því hafi Blaksambandið ekki þurft á kröftum Demirev að halda. Þá segir einnig að frammistaða hans hafi verið góð og að hún hafi ekki haft áhrif á úrslit leiksins.

Úrslitaleikurinn fer fram í Digranesi klukkan 15:30 í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert