Hundrað leikir Íslands og Ingvars

Ingvar Þór Jónsson.
Ingvar Þór Jónsson.

Ingvar Þór Jónsson, fyrirliði karlalandsliðs Íslands í íshokkí, lék í kvöld sinn 100. landsleik þegar Ísland vann stórsigur á Norður-Kóreu, 8:0, í B-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins í Mexíkóborg.

Það sem meira er, þetta var jafnframt 100. landsleikur Íslands frá upphafi en Ingvar hefur spilað hvern einasta landsleik síðan Ísland spilaði þann fyrsta fyrir 20 árum, árið 1999.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert