Anna og Hera mætast á nýjan leik

Raj K. Bonifacius og Hera Björk Brynjarsdóttir leika bæði til …
Raj K. Bonifacius og Hera Björk Brynjarsdóttir leika bæði til úrslita. Ljósmynd/TSÍ

Undanúrslit Íslandsmóts utanhúss í tennis fóru fram á tennisvelli Víkings í Fossvogi. Í karlaflokki tryggði Birkir Gunnarsson sér sæti í úrslitum með öruggum sigri á Björgvin Atla Júlíussyni, 6:0 og 6:2. Raj K. Bonifacius vann Valdimar Kr. Hannesson í hinum undanúrslitaleiknum, 7:5 og 6:2. 

Í kvennaflokki mætast Anna Soffia Grönholm og Hera Björk Brynjarsdóttir í úrslitum annað árið í röð. Anna Soffia vann Sofíu Sóley Jónasardóttur í undanúrslitum í dag, 6:4 og 6:2. Á sama tíma hafði Hera betur á móti Selmu Dagmar Óskarsdóttur, 6:4 og 6:1.  

Úrslitaleikirnir fara fram á morgun og hefjast þeir kl. 11. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert