Birkir og Anna Soffía meistarar

Birkir Gunnarsson með Íslandsmeistarabikarinn.
Birkir Gunnarsson með Íslandsmeistarabikarinn. Ljósmynd/Aðsend

Birkir Gunnarsson og Anna Soffía Grönholm tryggðu sér Íslandsmeistaratitla í tennis utanhúss á tennisvöllum Víkings.

Birkir hafði betur gegn Raj K. Bonifacius úr Víkingi í úrslitum, 6:0 og 7:5 og varð Íslandsmeistari í fjórða sinn. Anna Soffía hafði betur gegn Heru Björk Brynjarsdóttir í kvennaflokki, 6:1 og 6:1. 

Soffía Sóley Jónasdóttir hafnaði í þriðja sæti eftir sigur á Selmu Dagmar Óskarsdóttur 6:0 og 7:6 og Björgvin Atli Júlíusson vann Valdimar Kr. Hannesson 6:0 og 6:1 í leiknum um þriðja sætið í karlaflokki. 

Anna Soffía Grönholm er Íslandsmeistari.
Anna Soffía Grönholm er Íslandsmeistari. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert