Stigameistarar sextánda árið í röð

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Tíana Ósk Whitworth náði báðar frábærum …
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Tíana Ósk Whitworth náði báðar frábærum árangri á ungmennamóti MÍ um helgina. Ljósmynd/FRI

ÍR fagnaði sigri í heildarstigakeppninni Meistaramóts Íslands í flokki 15-22 ára í frjálsum íþróttum sem fram fór á Selfossi um helgina. Þetta er sextánda árið í röð sem ÍR-ingar bera sigur úr býtum. Alls hlutu ÍR-ingar 97 verðlaun; 40 gull, 35 silfur og 22 brons.

Níu mótsmet voru sett um helgina og voru fjölmargir að bæta sinn besta árangur. Dagbjartur Daði Jónsson, ÍR, setti nýtt mótsmet í spjótkasti pilta 20-22 ára. Dagbjartur kastaði 71,62 metra og sigraði örugglega í greininni. Kormákur Ari Hafliðason, FH, setti mótsmet í 400 metra hlaupi pilta 20-22 ára en tími hans um helgina var 49,57 sekúndur. 

Birna Kristín Kristjánsdóttir, Breiðabliki, setti mótsmet í langstökki þegar hún stökk 5,92 metra og sigraði í greininni í flokki 16-17 ára. Í 100 metra hlaupi stúlkna 18-19 ára komu ÍR-stelpurnar Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Tiana Ósk Whitworth báðar í mark á 11,72 sekúndum. Guðbjörg var hins vegar örlítið á undan og var því dæmdur sigurinn. Tími þeirra beggja var nýtt mótsmet í greininni.

Ingibjörg Sigurðardóttir og Stella Dögg Blöndal, ÍR, settu báðar mótsmet. Ingibjörg keppti í 400 metra hlaupi stúlkna 18-19 ára þegar hún sigraði í greininni á 58,31 sekúndu. Stella Dögg sigraði í stangarstökki stúlkna 20-22 ára með því að stökkva yfir 3,20 metra. Sveit ÍR í flokki stúlkna 18-19 ára setti mótsmet í 4×100 metra boðhlaupi á tímanum 48,42 sekúndum en sveitina skipuðu Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, Tiana Ósk Whitworth, Þóra Kristín Hreggviðsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir. Þá setti Úlfheiður Linnet úr FH mótsmet í 1.500 metra hlaupi stúlkna 15 ára en hún hljóp á 5:07,40 mínútum.

Þá bætti Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir eigið Íslandsmet í 200 metra hlaupi eins og mbl.is fjallaði um í gær en hún kom í mark á tímanum 23,45 sekúndur og bætti fyrra met sitt um tvo hundraðshluta úr sekúndu. Í sama hlaupi hljóp Tiana Ósk Whitworth, ÍR, í fyrsta sinni undir 24 sekúndum og kom í mark á 23,82 sekúndum í öðru sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert