Williams fór létt með Görges

Serena Williams hefur sjö sinnum fagnað sigri á Wimbledon-mótinu í …
Serena Williams hefur sjö sinnum fagnað sigri á Wimbledon-mótinu í tennis. AFP

Hin bandaríska Serena Williams er komin áfram í fjórðu umferð Wimbledon-mótsins í tennis eftir þægilegan 2:0-sigur gegn Julia Görges frá Þýskalandi í þriðju umferð mótsins. Williams vann fyrsta settið 6:3 og annað settið 6:4 en hún hafði yfirhöndina í leiknum allan tímann.

Williams er 37 ára gömul en hún hefur sjö sinnum fagnað sigri á Wimbledon-mótinu. Hún tekur einnig þátt í tvíliðaleik á mótinu í ár þar sem hún keppir með skotanum Andy Murray en Williams mætir Cörlu Suarez Navarro frá Spáni í fjórðu umferð keppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert