Táningsstjarna Wimbledon úr leik

Cori Gauff þurfti að játa sig sigraða.
Cori Gauff þurfti að játa sig sigraða. AFP

Hinn 15 ára gamla Cori Gauff þurfti að játa sig sigraða í 16-manna úrslitum á Wimbledon-mótinu í tennis í dag. Hún tapaði þá fyrir Simona Halep frá Rúmeníu, 6:3 og 6:3.  

Gauff er búin að vera skærasta stjarna mótsins og kom hún öllum á óvart með því að slá Venus Williams úr leik í fyrstu umferð.

Hún fylgdi því eftir með sigrum á Magdaléna Rybáriková frá Slóvakíu og Polona Hercog frá Slóveníu. 

Gauff virkaði hins vegar stressuð í dag og gerði mikið af mistökum snemma í leiknum. Halep, sem er í sjötta sæti á heimslistanum, nýtti sér það.

Gauff er yngsti keppandinn á Wimbledon-mótinu sem fer í 16-manna úrslit síðan Jennifer Capriati komst alla leið í undanúrslit árið 1991. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert