Dagbjartur í sjötta sæti á EM

Dagbjartur Daði Jónsson.
Dagbjartur Daði Jónsson. Ljósmynd/ÍSÍ

Dagbjartur Daði Jónsson hafnaði í sjötta sæti í spjótkasti á Evrópumeistaramóti 23 ára og yngri sem nú stendur yfir í Svíþjóð.

Dagbjartur átti þriðja lengsta kastið af 18 keppendum í undanúrslitum á fimmtudag, 76,80 metra. Í úrslitunum í dag kastaði hann 76,30 metra strax í fyrsta kasti og var það lengsta kast hans í úrslitunum. Hann var fjóra metra frá verðlaunasæti.

Öll sex köst hans í úrslitunum voru yfir 74 metra nema eitt, sem var þó yfir 70 metrana. Sigurvegarinn Cyprian Mrzyglód frá Póllandi kastaði 84,97 metra og setti mótsmet.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert