Mandic orðinn þjálfari HK

HK er komið með nýjan þjálfara.
HK er komið með nýjan þjálfara. mbl.is/Hari

Blakdeild HK hefur gengið frá ráðningu á Vladislav Mandic og mun hann þjálfa meistaraflokk karla hjá félaginu á næstu leiktíð. 

Mandic, sem er frá Serbíu, mun einnig koma að þjálfun yngri flokka félagsins og aðstoða við þjálfun meistaraflokks kvenna. Hann hefur lengi spilað og þjálfað blak í Frakklandi. 

Þar á undan lék hann blak og strandblak í heimalandinu með góðum árangri. Blakfrettir.is greindu frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert