Erna Sóley efst í riðlinum og í úrslit

Erna Sóley Gunnarsdóttir
Erna Sóley Gunnarsdóttir Ljósmynd/FRÍ

Erna Sóley Gunnarsdóttir komst örugglega í úrslit í kúluvarpi á Evrópumóti U20 í frjálsíþróttum í Borås í Svíþjóð en hún varð efst í sínum riðli.

Erna kastaði lengst 15,85 metra og var nokkuð fyrir ofan næstu keppendur í B-riðlinum og önnur alls í undankeppninni en Jorinde van Klinken frá Hollandi kastaði lengst allra, 16,90 metra. Erna kastaði 15,04 og 15,08 metra úr fyrstu tveimur köstum sínum.

Úrslitin fara fram klukkan 8:30 á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert