Guðbjörg hársbreidd frá verðlaunasæti

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir var hársbreidd frá verðlaunasæti í 200 metra hlaupi á Evr­ópu­móti U20 í frjálsíþrótt­um í Borås í Svíþjóð. Guðbjörg hafnaði í fjórða sæti á 23,64 sekúndum í úrslitahlaupinu í dag. 

Guðbjörg var aðeins 0,01 sekúndu á eftir Lucie Ferauge frá Belgíu sem hafnaði í þriðja sæti og 0,04 sekúndum á eftir Gemina Joseph frá Frakklandi sem varð önnur. 

Hin breska Amy Hunt vann örugglega, en hún hljóp á 22,94 sekúndum. Íslandsmet Guðbjargar er 23,45 sekúndur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert