Erna Sóley Norðurlandameistari

Erna Sóley Gunnarsdóttir
Erna Sóley Gunnarsdóttir Ljósmynd/FRÍ

Erna Sóley Gunnarsdóttir varð í dag Norðurlandameistari í kúluvarpi á Norðurlandamóti 19 ára og yngri í Kristiansand, Noregi. 

Erna kastaði 15,85 metra og setti nýtt mótsmet í leiðinni, en hennar besta kast til þessa er 16,13 metrar. 

Ísland hefur nú unnið tvenn gullverðlaun á mótinu, en í gær vann Kristján Viggó Sigfinnsson hástökk.

Erna er búin að eiga gott ár og vann hún m.a til bronsverðlauna á EM U20 ára fyrr í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert