Bætti heims­metið í hálfu maraþoni

Geoffrey Kamworor
Geoffrey Kamworor Ljósmynd/IAAF

Geoffrey Kamworor frá Keníu setti í morgun nýtt heimsmet í hálfu maraþoni þegar hann kom fyrstur í mark í hálfmaraþoni Kaupmannahafnar sem fram fór í Danmörku.

Tími hans í dag var 58 mínútur og ein sekúnda en hann bætti met landa síns, Abraham Kiptum, um 17 sekúndur. Kamworor er 26 ára gamall og varð heimsmeistari í greininni þrisvar árin 2014 til 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert