Tvöfaldur sigur KA á Hvammstanga

Kvennalið HK fagnar í gær.
Kvennalið HK fagnar í gær. Ljósmynd/BLÍ

KA varð meistari meistaranna í blaki í karla- og kvennaflokki í gær. Í meistarakeppni karla hafði KA betur gegn Álftanesi, 3:2, og í kvennaflokki hafði KA betur gegn HK með sömu stigatölu. 

Leikirnir fóru fram á Hvammstanga og var það Ungmennafélagið Kormákur sem sá um umgjörð og utanumhald.

Keppni í Mizuno-deild karla hefst föstudaginn 20. september er Álftanes fær Aftureldingu í  heimsókn og keppni í Mizuno-deild kvenna hefst sama dag, þar sem sömu lið mætast. 

Karlalið KA fagnar í gær.
Karlalið KA fagnar í gær. Ljósmynd/BLÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert