Sazonova mætir til leiks á ný eftir barnsburð

Irina Sazonova og Valgarð Reinhardsson verða á meðal keppenda á …
Irina Sazonova og Valgarð Reinhardsson verða á meðal keppenda á Norður-Evrópumótinu sem fram fer á Íslandi um helgina. mbl.is/Hari

Norður-Evrópumótið í áhaldafimleikum fer fram um komandi helgi. Mótið verður haldið í fimleikasal Íþróttafélagsins Gerplu í Kópavogi og hefst keppni báða daga kl. 14.00.

Sjö þjóðir munu berjast um titilinn í kvennaflokki og sex í karlaflokki. Á laugardeginum verður keppt í liðakeppni, en fimm keppendur eru liði, fjórir í liðinu keppa á hverju áhaldi og þrjár bestu einkunnirnar telja til stiga og einstaklingskeppni fer einnig fram. Á sunnudeginum verður keppt á einstökum áhöldum, en þar er krýndur sigurvegari á hverju áhaldi fyrir sig. Einungis átta bestu á hverju áhaldi frá laugardeginum fá keppnisrétt á sunnudeginum.

Ólympíufarinn Irina Sazonova er mætt aftur til keppni eftir barnsburð, en hún eignaðist frumburð sinn fyrir rúmum sjö mánuðum. Þetta er hennar fyrsta mót eftir barneignarfrí og mikilvægur partur af undirbúningi hennar fyrir heimsmeistaramótið í Stuttgart sem fram fer í byrjun október á þessu ári. Irina fær eingöngu eitt tækifæri til þess að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó, en heimsmeistaramótið er síðasta úrtökumótið fyrir leikana.

Íslandsmeistarinn Valgarð Reinhardsson mun keppa um helgina, en hann er einnig að undirbúa sig fyrir HM í byrjun næsta mánaðar og þar sem hann freistar þess að krækja sér í farseðil til Tókýó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert