Biles jafnaði met

Simone Biles.
Simone Biles. AFP

Bandaríska fimleikadrottningin Simone Biles jafnaði í dag met yfir fjölda verðlauna á heimsmeistaramóti í fimleikum.

Biles, sem er 22 ára gömul, vann í dag sinn 17. heimsmeistaratitil þegar hún sigraði í stökki á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Stuttgart í Þýskalandi. Þar með vann hún sín 23. verðlaun á heimsmeistaramóti og jafnaði met Hvít-Rússans Vitaly Scherbo.

Biles fékk tækifæri til að slá metið þegar hún keppti til úrslita á tvíslá en hún varð að láta sér lynda fimmta sætið í þeirri grein.

Biles fær tækifæri til að bæta metið á morgun en þá keppir hún til úrslita í tveimur síðustu greinunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert