Verða í eldlínunni á Norðurlandamótinu

Guðlaug Edda Hannesdóttir.
Guðlaug Edda Hannesdóttir. Ljósmynd/FRÍ

Ísland mun eiga þrjá fulltrúa á Norðurlandamótinu í víðavangshlaupi sem fram fer í Finnlandi á sunnudaginn.

Í karlaflokki verða hlaupnir 9 kílómetrar og fyrir Íslands hönd taka þátt þeir Hlynur Andrésson og Hlynur Ólason.

Konurnar hlaupa 7,5 kílómetra og verður Guðlaug Edda Hannesdóttir þar í eldlínunni.

Á vef Frjálsíþróttasambands eru íslensku keppendurnir kynntir og þar segir:

Hlynur Andrésson

Hlynur Andrésson er einn fremsti frjálsíþróttamaður Íslands og á þónokkur Íslandsmet allt frá því að hafa hlaupið hraðasta 1500 metra hlaupið með rafrænni tímatöku upp í það að eiga Íslandsmetið í 10 km hlaupi. Hann hefur mikla alþjóðlega keppnisreynslu og var meðal annars einn tveggja íslenskra keppenda á EM innanhúss fyrr á þessu ári.

Guðlaug Edda Hannesdóttir

Guðlaug Edda Hannesdóttir er þríþrautarkona en mun nú um helgina keppa fyrir hönd Frjálsíþróttasambands Íslands í víðavangshlaupi. Guðlaug náði nýverið sínum besta árangri í ólympískri þríþraut í heimsbikarkeppninni sem fram fór í Japan. Hún hefur sett stefnuna á Ólympíuleikana í Tókýó 2020.

Hlynur Ólason

Hlynur Ólason er 18 ára gamall og keppir í flokki ungkarla þar sem hlaupið er 6 km. Í byrjun árs sló hann fimmtán ára gamalt piltamet Kára Steins Karlsonar í 3000 metra hlaupi í flokki 16-17 ára pilta. Nýlega vann hann svo 10 km hlaup Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Hann er því einn af þeim fjölmörgu efnilegu frjálsíþróttaungmennum sem við Íslendingar eigum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert