Kvennasveit SH sló rétt í þessu Íslandsmetið í 4x50m skriðsundi á ÍM25 í Ásvallalaug. Synti hún á 1:43,18 en gamla metið var 1:45,43, frá því í desember 2012.
Sveitina skipuðu þær Steingerður Hauksdóttir, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Katarína Róbertsdóttir og Ingibjörg Kristín Guðmundsdóttir.
Úrslit dagsins hefjast kl. 16:30 en það er síðasti hluti mótsins.