Stjarnan tók silfur á NM í hópfimleikum

Stjarnan hafnaði í öðru sæti.
Stjarnan hafnaði í öðru sæti. Ljósmynd/Stjarnan

Kvennalið Stjörnunnar hafnaði í öðru sæti á Norðurlandamótinu í hópfimleikum sem fram fór í Drammen í Noregi um helgina.

Fjögur íslensk lið tóku þátt á mótinu, en kvennalið Gerplu, blandað lið Gerplu og karlalið Stjörnunnar tók einnig þátt. 

Stjarnan fékk m.a hæstu einkunn í dansi og var Andrea Sif Pétursdóttir valin í úrvalslið mótsins að því loknu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert