Stefanía og Bergrún bættu sig á HM

Stefanía Daney Guðmundsdóttir í langstökkskeppni.
Stefanía Daney Guðmundsdóttir í langstökkskeppni. Ljósmynd/Jón Björn

Frjálsíþróttakonurnar Stefanía Daney Guðmundsdóttir og Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir bættu persónulegan árangur sinn á HM í Dubai í morgun en þrátt fyrir það urðu þær stöllur að fella sig við að missa af úrslitum í sínum greinum. Stefanía keppti í langstökki í flokki T20 en Bergrún í 200 m hlaupi T37.

Stefanía Daney Guðmundsdóttir náði sínu lengsta stökki á árinu í alþjóðlegri keppni þegar hún stökk 4,81 metra í langstökkskeppni kvenna T20. Fram að HM í Dubai hafði Stefanía lengst stokkið 4,77 metra á heimsmótaröð IPC í Grosseto á Ítalíu. Stökkið upp á 4,81 m kom í fyrstu tilraun en næstu tvö stökk voru 4,77 m og 4,61 m.

Stefanía náði því ekki inn í úrslit til að taka seinni þrjú stökk keppninnar en síðasta manneskjan inn í úrslit var hin breska Martina Barber með stökk upp á 5,17 metra svo það er ljóst að það vantar ekki mikið upp á til að Stefanía fari að blanda sér í úrslitahópinn með þeim bestu í heiminum. Það var svo hin pólska Karolina Kucharczyk sem vann langstökkskeppnina á nýju heimsmeti þegar hún stökk 6,21 metra!

Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir náði sínum besta tíma í 200 m hlaupi þegar hún kom í mark á 31,30 sek. en fyrir keppnina var hún skráð til leiks með tíma upp á 31,61 sek. frá því á Evrópumeistaramótinu í Berlín sumarið 2018. Með tímanum sínum hafnaði Bergrún í 15. sæti af 18 keppendum en síðasti tíminn inn í úrslit 200 m hlaupsins var 29,36 sek.

Bergrún Ósk hefur því lokið leik á HM þetta árið með persónulega bætingu í langstökki og 200 m hlaupi og þá náði hún sínum besta tíma á árinu í 100 m hlaupi T37. Virkilega gott heimsmeistaramót að baki hjá þessum unga Ármenningi. Stefanía hins vegar verður aftur á ferðinni í kvöld þegar hún keppir í undanrásum í 400 m hlaupi og þá keppir Hulda Sigurjónsdóttir í kúluvarpi F20 kvenna.

Bergrún Ósk að koma í mark í 200 metra hlaupinu.
Bergrún Ósk að koma í mark í 200 metra hlaupinu. Ljósmynd/Jón Björn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert