NHL-deildin í íshokkí er allt annað en fyrirsjáanleg en tvö efstu lið deildarinnar fengu bæði skelli í nótt.
Washington Capitals er með bestan árangur allra liða sem af er tímabilinu. Engu að síður tapaði liðið illa á heimavelli í nótt gegn 2:5. Og það gegn Columbus Blue Jackets sem er með fimmta versta árangurinn í vetur af þrjátíu einu liði í deildinni.
Svipaða sögu er að segja af hinni viðureigninni. Boston Bruins sem er með næst besta árangurinn heimsótti Ottawa Seantors sem er með fjórða versta árangurinn. Ottawa vann 5:2.
Engin stig fást gefins í NHL-deildinni en þrátt fyrir þetta er búist við því að Washington og Boston séu til alls líkleg þegar að úrslitakeppninni kemur næsta vor.