Caroline Wozniacki, ein allra skærasta íþróttastjarnan Dana, mun sveifla tennisspaðanum í síðasta sinn á stórmóti í næsta mánuði.
Opna ástralska mótið verður hennar síðasta mót en Wozniacki greindi frá því á samfélagsmiðlum á dögunum að hún ætlaði að láta gott heita.
Í október í fyrra var greint frá því að Wozniacki væri með liðagigt og ekki ósennilegt að veikindin spili inn í ákvörðun hennar en Wozniacki er einungis 29 ára gömul. Rétt er þó að taka fram að hún fullyrðir í yfirlýsingu að veikindin hafi ekkert með ákvörðunina að gera.
Hún hefur verið atvinnumaður í fjórtán ár þar sem hún lagði tennis fyrir sig strax að skyldunámi loknu.
Big announcement! pic.twitter.com/gkA0CrMzdo
— Caroline Wozniacki (@CaroWozniacki) December 6, 2019