Besti árangur vetrarins í heimsbikarnum

Snorri Einarsson.
Snorri Einarsson. AFP

Snorri Einarsson, A-landsliðsmaður í skíðagöngu, hélt áfram þátttöku sinni í heimsbikarnum í vetur, en það er sterkasta mótaröð í heimi. Hann keppti í 30 km skiptigöngu í gær. Í henni er byrjað að fara 15 km með hefðbundinni aðferð og síðan 15 km með frjálsri aðferð.

Snorri hóf leik nr. 44 og var þar af leiðandi í 44. sæti yfir sterkustu keppendur mótsins út frá heimslista. Snorri átti virkilega góðan dag og sinn besta í vetur í heimsbikarnum. Að loknum fyrri 15 km var hann kominn í 32. sæti og var 1:45,3 mínútu á eftir fyrsta keppanda. Í seinni hlutanum átti Snorri frábæra göngu og endaði að lokum í 27. sæti og einungis 1:54.3 á eftir fyrsta keppenda. Í seinni 15 km var Snorri einungis 9 sekúndum á eftir sigurvegaranum Alexander Bolshunov frá Rússlandi. 

Fyrir árangur fær Snorri 36,20 FIS-stig sem eru hans bestu stig í vetur og má gera ráð fyrir því að hann færist framar á næsta heimslista. Einnig fékk Snorri fjögur heimsbikarstig en einungis 30 efstu í hverju móti fá slík stig og sá sem hefur flest stig eftir veturinn er krýndur stigameistari heimsbikarsins. Einungis það að ná 30 efstu sætunum fyrir okkur Íslendinga er risastór árangur og sýnir hversu góður Snorri er á heimsvísu. 

Heildarúrslit má sjá hér.

Síðar í dag fer fram sprettganga og verður Snorri á meðal þátttakenda. Eftir þessa helgi tekur við smá keppnisfrí og mun hann æfa fyrir Ski Tour sem hefst 15. febrúar og stendur til 23. febrúar. Þar sem ekkert heimsmeistaramót eða Vetrarólympíuleikar eru í ár var sett upp Ski Tour, sem er í raun hluti af heimsbikarnum, en einungis fleiri mót á færri dögum en tíðkast venjulega.

Farnar verða sex göngur á einungis níu dögum. Fyrsta keppnin fer fram í Östersund í Svíþjóð og sú síðasta í Þrándheimi í Noregi en keppnirnar á milli fara fram í Åre í Svíþjóð og Meraker í Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert