Sá besti óvænt úr leik í Ástralíu

Austurríkismaðurinn Dominic Thiem sló Rafael Nadal úr leik í Ástralíu.
Austurríkismaðurinn Dominic Thiem sló Rafael Nadal úr leik í Ástralíu. AFP

Tenniskappinn Rafael Nadal er úr leik á Opna ástralska meistaramótinu í tennis eftir óvænt tap gegn Austurríkismanninum Dominic Thiem í átta liða úrslitum keppninnar í Melbourne í morgun. Thiem reyndist sterkari en Nadal í fjögurra setta leik og vann 3:1-sigur.

Thiem vann fyrsta settið eftir upphækkun, 7:6, og líka það annað, 7:6. Nadal svaraði í þriðja setti og vann 6:4-sigur en Thiem hafði betur í fjórða setti og vann 7:6-sigur eftir upphækkun. Thiem er í fimmta sæti heimslistans en Nadal er í efsta sætinu og þótti sigurstranglegur fyrir mótið.

Thiem og Nadal hafa mæst tvö ár í röð í úrslitum Opna franska meistaramótsins þar sem Nadal hefur fagnað sigri í bæði skiptin og sigur Thiem því afar kærkominn. Thiem mætir Alexander Zverev frá Þýskalandi í undanúrslitum mótsins en í hinu undanúrslitaeinvíginu mætast Roger Federer og Novak Djokovic.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert