Lyfjaeftirlitið komið með uppljóstrunarkerfi

Lyfjaeftirlitið leitar leiða til að upplýsa um brot á lyfjareglum …
Lyfjaeftirlitið leitar leiða til að upplýsa um brot á lyfjareglum í íþróttum. AFP

Lyfjaeftirlit Íslands hefur tekið í notkun uppljóstrunarkerfi í þeim tilgangi að stuðla betur að heiðarlegu og öruggu keppnis- og æfingaumhverfi í íþróttum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Lyfjaeftirlitið sendi frá sér í dag.

Tilkynningin er svohljóðandi:

Kerfið er eingöngu ætlað til þess að tilkynna um möguleg brot á lyfjareglum í íþróttum, skv. Lögum ÍSÍ um lyfjamál og Alþjóðalyfjareglunum. Það felur í sér m.a.:

• Notkun efna á bannlista World Anti-Doping Agency (WADA)
• Að eiga eða hafa undir höndum efni á bannlista WADA
• Framleiðslu, dreifingu eða sölu á efnum eða efni á bannlista WADA
• Hvatningu til eða aðstoð við notkun efnis á bannlista WADA

Hver sá sem býr yfir grun eða vitneskju um brot á lyfjareglum í íþróttum getur tilkynnt um slíkt. Hægt er að fylla út skýrslu og senda upplýsingar beint í gegnum kerfið á vefslóðinni lyfjaeftirlit.whistleblowingnetwork.net eða fara inn í það í gegnum www.lyfjaeftirlit.is.

Fólk hefur valmöguleika á að senda inn upplýsingar undir öruggri nafnleynd. Kerfið býður þá upp á nafnlaus samskipti í gegnum öryggispósthólf, kjósi það svo. Öll samskipti eru órekjanleg nema viðkomandi velji sérstaklega að svo sé ekki. Kerfið er vottað samkvæmt ISO 270001, sem er staðall fyrir meðferð trúnaðarupplýsinga og upplýsingaöryggi. Einnig samræmist kerfið persónuverndarreglugerð ESB 2016/679 (GDPR). Nánari upplýsingar um kerfið má finna á lyfjaeftirlit.whistleblowernetwork.net eða á lyfjaeftirlit.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert