Ráðist á þrjá dómara

Luigi Lamonica er þaulreyndur dómari.
Luigi Lamonica er þaulreyndur dómari. Ljósmynd/Wikipedia.org

Ráðist var á þrjá körfuknattleiksdómara í Aþenu eftir leik Panathinaikos Opap Athens og FC Barcelona í EuroLeague í gær.

Í frétt Eurohoops kemur fram að dómararnir, þeir Luigi Lamonica, Damir Javor og Emin Mogulkoc, hafi verið komnir í leigubifreið sína og á leið frá leikvanginum á hótel sitt er óprúttnir aðilar réðust að þeim.

Lamonica hlaut alvarlegustu meiðslin og var færður á spítala yfir nótt.

Gríska lögreglan rannsakar nú málið.

Gestirnir frá Barcelona unnu leikinn 92:81.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert