Gefur fimm milljónir dollara

Drew Brees, leikstjórnandi New Orleans, er einn sá besti í …
Drew Brees, leikstjórnandi New Orleans, er einn sá besti í deildinni. AFP

Drew Brees, leikstjórnandi New Orleans Saints í NFL-deildinni í ruðningi tók sig til og gaf Louisiana-ríki fimm milljónir dollara í baráttunni við kórónuveiruna. Fimm milljónir dollara eru tæplega 700 milljónir króna. 

Brees, sem er 41 árs, hefur spilað með New Orleans síðan 2006 og er einn besti leikstjórnandinn í sögu deildarinnar. Varð hann meistari með New Orleans árið 2010. 

Leikstjórnandinn skrifaði á dögunum undir nýjan tveggja ára samning við félagið og fær hann um 50 milljónir dollara fyrir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert