Stærsta viðburði ársins frestað

Frá hátíðinni.
Frá hátíðinni. Ljósmynd/Eurogym

Vegna kórónuveirunnar hefur sú erfiða ákvörðun hefur verið tekin af stjórn Fimleikasambands Íslands og Evrópska fimleikasambandinu að fresta Eurogym-hátíðinni sem fara átti fram á Íslandi í júlí 2020. 

Hátíðin hefði orðið stærsti íþróttaviðburður á landinu fram til þessa, þar sem 5000 ungmenni stefndu á að sýna fimleika víðs vegar um Reykjavíkurborg, ásamt því að taka þátt í vinnubúðum og fræðsluviðburðum. 

Fréttatilkynning FSÍ: 

5.000 manna íþróttahátíð Fimleikasambandsins frestað

Í ljósi Covid-19 hefur sú erfiða ákvörðun hefur verið tekin af stjórn Fimleikasambands Íslands og Evrópska fimleikasambandinu að fresta Eurogym hátíðinni sem fara átti fram á Íslandi í júlí 2020. Hátíðin hefði orðið stærsti íþróttaviðburður á landinu fram til þessa, þar sem 5000 ungmenni stefndu á að sýna fimleika víðs vegar um Reykjavíkurborg, ásamt því að taka þátt í vinnubúðum og fræðsluviðburðum. 

„Það eru auðvitað gríðarleg vonbrigði að fresta þessari hátíð nú þegar undirbúningur hefur staðið í rúmt ár. En það er ekk­ert annað hægt að gera í nú­ver­andi stöðu þar sem velferð þátttakanda og sjálfboðaliða verður að vera í fyr­ir­rúmi,“ seg­ir Halla Karí Hjaltested , viðburðastjóri Eurogym. 

Hátíðin er fyrir alla, á þeirra forsendum 

Eurogym 2020 er fimleikahátíð fyrir ungmenni á aldrinum 12-18 ára frá Evrópu sem eiga það sameiginlegt að finnast fimleikar skemmtileg íþrótt. Áhersla hátíðarinnar er þátttaka, gleði og fræðsla. En eitt af aðalmarkmiðum Fimleikasambandsins er að þjónusta öll börn, líka þau sem vilja aðrar áherslur en keppni.

Á hátíðinni koma saman ungmenni frá ólíkum bakgrunni í þeim tilgangi að sýna fimleika á sviðum í miðborginni. Einnig er þetta tækifæri fyrir þau til að kynnast hvort öðru, Íslandi og íslenskri menningu og víkka um leið sjóndeildarhringinn.

Halla Karí seg­ir ljóst að tjónið sem hljót­ist af því að fresta hátíðinni sé töluvert. „Þá er ég að vísa til bæði beinna og óbeinna áhrifa,“ seg­ir Halla Karí og bend­ir á að auk Fimleikasambandsins verði ferðaþjónustan og fyrirtæki í viðburðarhaldi fyr­ir töluverðu höggi. 

Stefnt er að því að halda hátíðina í Reykjavík í júlí 2021 og á næstu vikum verður unnið að því að finna nákvæma dagsetningu og verður hún tilkynnt í lok apríl. Lögð er rík áhersla á að finna dagsetningu sem fyrst, til að tryggja þátttöku þeirra sem nú þegar hafa skráð sig og þeirra 2000 foreldra sem von var á að fylgdu þátttakendum á hátíðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert