Sá besti segir ekki tímabært að byrja aftur

Rafael Nadal.
Rafael Nadal. AFP

Tenniskapp­inn Rafa­el Na­dal segir ekki tímabært að hefja tímabilið í bráð eftir að aflýsa þurfti öllum viðburðum vegna kórónuveirunnar. Til stendur að Opna bandaríska mótið fari fram í ágúst og opna franska mánuði síðar.

Nadal, sem er orðinn 34 ára, er einn sigursælasti tennisleikmaður heims en hann telur ekki ráðlegt að byrja keppni aftur á meðan faraldurinn er ekki genginn yfir. „Ef þú spyrð mig í dag, hvort ég sé tilbúinn að ferðast milli landa til að keppa í tennis. Þá myndi ég segja nei,“ sagði Spánverjinn í viðtali við Independent.

„Ég er samt viss um að rétt ákvörðun verði tekin, og ef opna bandaríska mótið fer fram þá er ég viss um að það verði gætt fyllsta öryggis.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert