Nýtt Íslandsmet í Kaplakrika

Vigdís Jónsdóttir bætti eigið Íslandsmet í dag.
Vigdís Jónsdóttir bætti eigið Íslandsmet í dag. Ljósmynd/FRÍ

Vigdís Jónsdóttir bætti í dag eigið Íslandsmet í sleggjukasti á Origo-móti FH. Mótið fór fram í Kaplakrika í sólskini og við frábærar aðstæður. Vigdís kastaði 62,58 metra og bætti sitt eigið met um 20 sentímetra.

Fyrra metið hafði ekki staðið lengi en Vigdís hafði sett það í byrjun mánaðarins. Þá var hún að endurheimta metið af Elísabetu Rún Rúnarsdóttir. Vigdís bætti Íslandsmetið fyrst árið 2014 og var nú að bæta það í ellefta skiptið.

Vigdís og Elísabet mættust fyrr í vikunni þar sem Elísabet hafði betur en hún keppti ekki í dag. Líklegt er að þær stefni báðar á að toppa sig á Meistaramóti Íslands sem fram fer 25.-26. júlí á Kópavogsvelli og því gæti metið fallið þar í þriðja skiptið í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert