Þrettán ára bætti metið um þrettán sekúndur

Þórdís Eva Steinsdóttir, Tiana Ósk Whitworth og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir …
Þórdís Eva Steinsdóttir, Tiana Ósk Whitworth og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir voru á meðal keppenda í gær.

Í Kaplakrika í gær fór fram 8. Origo-mót FH í frábæru veðri og við góðar aðstæður. Á mótinu bætti Vigdís Jónsdóttir Íslandsmet sitt í sleggjukasti, en á dagskránni voru sautján keppnisgreinar og ágætisfjöldi keppenda í flestum greinum. 

Í 100 metra hlaupi karla sigraði Kolbeinn Höður Gunnarsson, FH. Kolbeinn átti frábært innanhússtímabil í vetur þar sem hann bætti Íslandsmet sitt í 200 metra hlaupi. Hann sýndi það aftur í gær að hann er í góðu formi og átti flott hlaup. Kolbeinn kom í mark á 11,63 sekúndum sem er einungis 5/100 úr sekúndu frá hans besta árangri. Meðvindur í hlaupinu var 2,0 m/s sem er alveg við leyfileg mörk. 

Annar í mark í sama hlaupi varð Dagur Andri Einarsson, ÍR, á 11,06 sekúndum og þriðji Ólíver Máni Samúelsson, Ármanni, á 11,07 sekúndum. Ólíver keppti einnig í 200 metra hlaupi þar sem hann kom í mark á nýju persónulegu meti, 22,46 sekúndum. Meðvindur var 1,9 m/s.

Kolbeinn keppti einnig í 60 og 150 metra hlaupi sem eru óhefðbundnar vegalengdir. Í 60 metra hlaupinu varð hann á 6,98 sekúndum í 1,6 m/s meðvindi og í 150 metrunum kom hann í mark 15,99 sekúndum í ólöglegum meðvindi, 2,4 m/s.

Í 100 og 200 metra hlaupi kvenna fengu þær íslensku sterka keppni frá Naomi Sedney frá Hollandi. Naomi varð Evrópumeistari í 4×100 metra boðhlaupi árið 2016 og keppti á Ólympíuleikunum sama ár. Hún kom fyrst í mark í bæði 100 og 200 metra hlaupinu á 11,37 sekúndum (+2,2 m/s) og 23,44 sekúndum (+3,8 m/s). 

Önnur í báðum hlaupunum varð Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, ÍR, sem á Íslandsmetið í báðum greinum. Í 100 metra hlaupinu kom hún í mark á 11,64 sekúndum sem er rétt frá Íslandsmeti hennar, 11,56 sekúndum. Hlaupið var þó rétt svo ólöglegt þar sem meðvindur var 2,2 m/s en leyfilegur vindur er 2,0 m/s. Þriðja var Tiana Ósk Whitworth, ÍR, á 11,92 sekúndum en hennar besti árangur er 11,57 sekúndur sem var Íslandsmet í um tvær klukkustundir. 

Í 200 metra hlaupinu var Guðbjörg Jóna á 23,96 sekúndum og þriðja varð Þórdís Eva Steinsdóttir, FH, á 24,44 sekúndum.

Í þrístökki kvenna stökk Hekla Sif Magnúsdóttir, FH, 12,08 metra en einungis níu íslenskar konur hafa stokkið fyrir 12 metra. Stökkið var því miður ekki löglegt þar sem meðvindur var rétt yfir löglegum mörkum eða 2,1 m/s. 

Keppt var í 1.000 metra hlaupi, sem er ekki hefðbundin keppnisgrein. Þar kom hin þrettán ára Ísold Sævarsdóttir úr FH fyrst í mark á 3:05,58 mínútum. Besti árangur sem skráður er í hennar aldursflokki í greininni er frá árinu 1981. Þá hljóp Linda Björk Loftsdóttir á 3;18,9 mínútum og því bætti Ísold þann árangur töluvert. 

Hér má sjá öll úrslit mótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert