Sló 37 ára gamalt Íslandsmet

Hlynur Andrésson bætti 37 ára gamalt Íslandsmet í gær.
Hlynur Andrésson bætti 37 ára gamalt Íslandsmet í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Hlynur Andrésson sló í gærkvöldi 37 ára gamalt Íslandsmet í 3000 metra hlaupi á móti í Hollandi. Hlynur kom í mark á 8:04,54 mínútum og var að bæta Íslandsmetið um rúma sekúndu. Fyrra metið var 8:05,63 mínútur og það setti Jón Diðriksson árið 1983. 

Þetta var fyrsta mót Hlyns í sumar en hann hefur mikið þurft að æfa einn síðustu vikur vegna afleiðinga kórónuveirunnar. Í hlaupinu hljóp Hlynur á móti sterkum keppendum sem hafa áður hlaupið undir átta mínútum. 

„Hlynur segir að hann sé sterkur á endasprettinum og það henti honum oft vel að bíða og hanga í mönnum þar til stutt sé eftir af hlaupinu og taka af skarið síðustu 100 metrana. Þegar þrír hringir voru eftir í gær, sem eru 1200 metrar, sá Hlynur að hann ætti möguleika á metinu og tók því af skarið. Það tókst vel þar sem hann náði forystunni og leiddi hlaupið það sem eftir var og setti Íslandsmet í leiðinni.

Hlynur segist ekki hafa stefnt að þessu meti lengi þar sem meiri fókus hafi verið á 3000 metra hindrunarhlaupi hjá honum. Samt sem áður sé gaman að bæta þessu metið í safnið þar sem hann á nú þegar metin í 5.000 og 10.000 metrum utanhúss og 3000 metra hindrun. Þetta er hans áttunda Íslandsmet.

Hlynur á einnig Íslandsmetið í greininni innanhúss þar sem hann hefur hlaupið undir átta mínútum. Hann segist því klárlega stefna á að bæta met sitt utanhúss enn frekar og mun hann fá tækifæri til þess þegar hann keppir aftur í sömu vegalengd í Belgíu eftir tæpar þrjár vikur,“ segir í yfirlýsingu frá Frjálsíþróttasambandinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert