Kia mun bæta við rafbíl og tengiltvinnbílum í bílaflotann á næstunni. Kia Sorento í Hybrid útfærslu kemur á markað nú í haust.
„Þessi stóri og stæðilegi sportjeppi verður með 1,6 lítra bensínvél með forþjöppu sem samlagt skila 240 hestöflum og alls 440 Nm togi,“ segir í tilkynningu.
Sorento kemur svo í byrjun næsta árs koma í tengiltvinn útfærslu og mun verða með drægi upp á um 70 km. Í honum verður öflugur rafmótor sem skilar samstals 265 hestöflum.
„Þetta verður fjórða kynslóð Kia Sorento sem er flaggskip Kia í sportjeppaflotanum,“ segir í tilkynningu frá Öskju, umboði fyrir Kia bíla á Íslandi.
Nýr Kia Sorento tengiltvinn bætist við tengiltvinnbílaflóru Kia en nýverið bættust einnig við X-Ceed borgarjepplingurinn og Ceed Sportswagon skutbíllinn. Sorento verður fjórhjóladrifinn með sæti fyrir allt að sjö farþega.
Þá er glænýr rafbíll á leiðinni frá Kia. Um er að ræða sportlegan jeppling sem á að draga rúma 500 km á rafmagninu. Stefnt er að hann komi á markað á næsta ári.
Kia kynnti hugmyndabílana Imagine og Futuron á síðasta ári sem fengu mikla athygli og ef marka má myndir líkist þessi nýi rafbíll þeim síðarnefnda að nokkru leyti.
Kia er nú þegar með tvo mjög vinsæla rafbíla Soul og e-Niro en þessi nýi jepplingur yrði þá þriðji hreini rafbíll bílaframleiðandans.