Tvöfaldur sigur Víkings

Þórunn Árnadóttir, Stella Kristjánsdóttir, Lóa Zink, Nevana Tasic og Ages …
Þórunn Árnadóttir, Stella Kristjánsdóttir, Lóa Zink, Nevana Tasic og Ages Brynjarsdóttir. Ljósmynd/Borðtennissamband Íslands

Víkingur Reykjavík varð í dag tvöfaldur Íslandsmeistari í liðakeppni í borðtennis. Varð Fossvogsliðið meistari í karla- og kvennaflokki. 

Stella Kristjánsdóttir, Agnes Brynjarsdóttir, Nevana Tasic, Þórunn Árnadóttir og Lóa Zink skipa kvennalið Víkings sem hafði betur gegn BH, 3:0. 

Karlaliðið mætti KR í úrslitum og vann að lokum nauman 3:2-sigur eftir mikla spennu. Ingi Darvis, Daði F. Guðmundsson og Magnús J. Hjartarson skipa liðið. 

Daði F. Guðmundsson, Ingi Darvis og Magnús J. Hjartarson.
Daði F. Guðmundsson, Ingi Darvis og Magnús J. Hjartarson. Ljósmynd/Borðtennissamband Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert