Meistarar í annað sinn í sögu félagsins

Fyrirliðinn Zach Bogosian hefur Stanley-bikarinn á loft í Edmonton.
Fyrirliðinn Zach Bogosian hefur Stanley-bikarinn á loft í Edmonton. AFP

Tampa Bay Lightning varð NHL-meistari í íshokkí í annað sinn í sögu félagsins en liðið lagði Dallas Stars í sjötta leik liðanna í úrslitaeinvígi NFL-deildarinnar í Edmonton í Kanada í nótt.

Leiknum lauk með 2:0-sigri Tampa Bay Lightning en Brayden Point kom Tampa yfir um miðjan fyrsta leikhluta.

Blake Coleman bætti við öðru marki Tampa í öðrum leikhluta og þar við sat.

Tampa komst í 3:1 í einvígi liðanna en Dallas tókst að kom til baka og minnka muninn í 3:2.

Liðið varð síðast meistari árið 2004 en Tampa Bay Lightning var stofnað árið 1992.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert