Tom Brady minnti á sig

Hinn 43 ára gamli Tom Brady leggur á ráðin.
Hinn 43 ára gamli Tom Brady leggur á ráðin. AFP

Sigursælasti leikstjórnandi í NFL-deildinni frá upphafi, Tom Brady, minnti á sig í gærkvöld þegar Tampa Bay Buccaneers burstaði Green Bay Packers 38:10 sem ekki hafði tapað leik fram að því. 

Sjálfstraustið var mikið hjá Green Bay í upphafi leiks eftir að hafa unnið fyrstu fjóra leikina. Liðið komst í 10:0 í fyrsta leikhluta. Leikstjórnandinn Aaron Rodgers hafði ekki kastað boltanum frá sér þegar kom að leiknum í gær en gerði það tvívegis í öðrum leikhluta. Tampa Bay snéri taflinu við og vann öruggan sigur en lið Green Bay brotnaði og skoraði ekki í síðustu þremur leiklutunum. Tampa hefur unnið fjóra leiki og tapað tveimur. 

Eftir tapið hjá Green Bay Packers eru þrjú lið í deildinni ósigruð eftir fimm leiki, Tennessee Titans, Pittsburgh Steelers og Seattle Seahawks. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert