Fjölmargir núverandi og fyrrverandi knattspyrnumenn og knattspyrnuáhugamenn hafa minnst Maradona á samfélagsmiðlum í dag. Argentíski fjölmiðilinn Clarín greindi frá því fyrr í dag að Diego Maradona væri látinn sextugur að aldri.
Maradona spilaði meðal annars fyrir Barcelona á Spáni, Napoli á Ítalíu og Boca Juniors í Argentínu. Hann var af mörgum talinn besti knattspyrnumaður sögunnar.
Fyrrverandi fótboltamaðurinn og fótboltalýsandinn, Gary Lineker, minnist Maradona á Twitter og segir:
„Að miklu leyti besti leikmaður minnar kynslóðar og eflaust sá besti allra tíma. Eftir gjöfult en vandasamt líf finnur hann vonandi loksins huggun í höndum Guðs.“