Átta smit hjá sama liðinu

Lamar Jackson, til hægri, er nýjasti leikmaður Baltimore til þess …
Lamar Jackson, til hægri, er nýjasti leikmaður Baltimore til þess að greinast með veiruna. AFP

Átta leikmenn bandaríska ruðningsliðsins Baltimore Ravens eru smitaðir af kórónuveirunni en það er bandaríski miðillinn Sports Center sem greinir frá þessu.

Lamar Jackson, leikstjórnandi liðsins, er nýjasti leikmaður Baltimore sem greinist með veiruna en hlaupararnir J.K Dobbins og Mark Ingram II greindust báðir með veiruna í vikunni.

Baltimore Ravens á að mæta Pittsburg Steelers í NFL-deildinni vestanhafs á sunnudaginn kemur. 

Það verður að teljast afar ólíklegt að leikurinn muni fara fram þar sem leikmönnum liðsins hefur verið tjáð að þeir megi ekki snúa aftur á æfingasvæði liðsins fyrr en á mánudaginn kemur.

Baltimore hefur ekki byrjað tímabilið neitt sérstaklega vel en liðið er í þriðja sæti AFC-norður riðilsins með sex sigra og fjögur töp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert