Tókst ekki að ljúka fyrri ferð

Sturla Snær Snorrason.
Sturla Snær Snorrason.

Sturlu Snæ Snorra­syni tókst ekki að ljúka fyrri ferð í svigkeppni á HM í alpa­grein­um í Cort­ina d'Am­pezzo á Ítal­íu í morg­un. Austurríkismaðurinn Adrian Pertl er efstur.

Heimamaðurinn Alex Vinatzer er annar og Sebastian Foss-Solevåg frá Noregi er í þriðja sæti eftir fyrri ferðina en sú síðari fer fram klukkan 12:30 í dag.

Sturla Snær lenti í fjórða sæti í undankeppninni í gær þar sem þrír aðrir Íslendingar kepptu án þess að komast áfram. Efsti maður heimsbikarsins í svigi, Marco Schwarz frá Austurríki, náði ekki nema áttunda sæti í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert